flugfréttir

Þotueldsneyti notað áfram til ársins 2050

14. júní 2021

|

Frétt skrifuð kl. 15:02

Airbus telur að hefðbundið þotueldsneyti verði notað áfram í farþegaflug til ársins 2050

Airbus hefur sent frá sér yfirlýsingu og þar á meðal til ríkisstjórna í löndum Evrópu þar sem fram kemur að flugvélaframleiðandinn geri ráð fyrir því að hefðbundið þotueldsneyti verði helsti orkugjafinn fyrir flugvélar með þotuhreyfla að minnsta kosti til ársins 2050.

Flugiðnaðurinn hefur verið undir töluverði pressu að skipta yfir í umhverfisvænni orkugjafa á borð við lífrænt eldsneyti eða raforku en talið er að aðeins um 2% af öllum kolefnaútblæstri í heiminum megi rekja til flugvéla.

Evrópusambandið birti í febrúar á þessu ári skýrslu þar sem fram kemur hvernig draga mætti úr öllum kolefnaútblæstri í fluginu fyrir árið 2050 með þeim tækniframförum sem hafa átt sér stað og auknum umsvifum í framleiðslu á umhverfisvænna eldsneyti.

Airbus tilkynnti í september í fyrra að vonir væru bundnar við að hægt væri að þróa farþegaflugvél sem skildi eftir sig engan kolefnaútblástur sem gæti komið á markað árið 2035 og hafði flugvélaframleiðandinn komið fram með hugmyndir um þrjár útgáfur af orkugjöfum þar sem vetni er aðalundirstaðan.

Airbus telur að vetnisorkugjafi eigi eftir að spila stórt hlutverk í framtíðinni þar sem rafmagnsflugvélar geta enn sem komið er aðeins flogið mjög stuttar flugleiðir og þarf mun lengri tíma til þess að hægt sé að þróa rafmagnstækni sem býður upp á lengri flug fyrir stórar flugvélar.

„Flugvélar sem skilja eftir sig engan kolefnaútblástur verða eingöngu hægt að nota í flug á stuttum flugleiðum frá og með árinu 2035 sem þýðir að almennt farþegaflug mun nánast alfarið reiða sig á hefðbundið þotueldsneyti líkt og í dag að minnsta kosti til ársins 2050, sérstaklega á lengri flugleiðum“, segir í tilkynningu frá Airbus.

Airbus stefnir á að hefja tilraunir með umhverfisvænna þotueldsneyti fyrir Airbus A320 þotuna og gæti farþegaflug með endurnýtanlegum orkugjafa hafist í náinni framtíð til ársins 2050 en eftir það gætu A320 þotur farið að fljúga mögulega fyrir vetni.

Smærri þotur á borð við Airbus A220 gætu notað raforku, vetni eða endurnýtanleg eldsneyti frá og með árinu 2040 og telur Airbus að litlar flugvélar með skrúfumótor, sem taka 50 til 100 manns, gætu alfarið farið að fljúga fyrir vetni á fjórða áratug þessarar aldar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga