flugfréttir
Fylla í skarð Stobart Air sem varð gjaldþrota um helgina
ATR 72-600 flugvél frá Stobart Air á flugvellinum í Belfast City
Nokkur dótturfélög á vegum IAG (International Airlines Group) hafa tekið yfir nokkrar af þeim flugleiðum sem Stobart Air skildi eftir sig eftir að félagið hætti flugrekstri um helgina.
Stobart Air var írskt flugfélag sem annaðist flugrekstur fyrir hönd nokkurra flugfélag og þar
á meðal Aer Lingus Regional, BA CityFlyer og KLM Cityhopper en félagið hætti flugrekstri seint
að kvöldi föstudagsins 11. júní.
Verið er að finna skiptastjóra til þess að skipta upp eignum flugfélagsins en tilraunir til þess
að selja reksturinn fóru út um þúfur og ákvað stjórn félagsins því að leggja árar í bát og var öllu
flugi afslýst sl. laugardag sem varð til þess að þúsundir farþega þurftu að finna sér aðrar
samgöngur til þess að komast á áfangastað.
Stobart Air flaug 12 flugleiðir áður en það hætti starfseminni en Aer Lingus og BA CityFlyer
hafa hlaupið undir bagga og eru byrjuð að fljúga sjö af þessum flugleiðum tímabundið.
Aer Lingus hefur tekið að sér að fljúga fimm flugleiðir sem eru flug á milli Dublin og Edinborgar, Manchester
og flug á milli Belfast City og Birmingham, Edinborgar og Manchester á meðan BA CityFlier hefur tekið
yfir flug á milli Belfast City og Exeter og Leeds.
Sögu Stobart Air má tekja aftur til ársins 1970 en félagið var þá stofnað sem Aer Arann en nafni félagsins
var breytt í Stobart Air árið 2014.
Flugfélagið hafði þrettán flugvélar í sínum flota af gerðinni ATR 42-600 og ATR 72-600 og flaug félagið
til 20 áfangastaða á Bretlandseyjum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.