flugfréttir
Áætla yfir 9.000 flugferðir með 737 MAX í júlí
Flugvélar í flota Southwest Airlines á Fort Lauderdale/Hollywood flugvellinum í Flórída
Southwest Airlines áætlar að fljúga um 9.200 flugferðir í júlí með Boeing 737 MAX þotunum sem samsvarar um 9% af öllum flugferðum í leiðarkerfinu í þeim mánuði.
Það þýðir að Southwest Airlines mun fljúga til 84 flugvalla á 270 mismunandi flugleiðum en flugfélagið bandaríska hefur fengið 68 þotur afhentar af gerðinni Boeing 737 MAX 8.
Flugfélagið byrjaði að fljúga MAX-þotunum á ný fyrir þremur mánuðum
síðan og flaug félagið um 700 flugferðir í mars, 5.200 flugferðir í apríl
og loks í maí voru flugferðir með 737 MAX orðnar 8.400.
Í dag hefur Southwest 737 þotur í flota sínum sem er skemmtileg tala í augnablikinu þar sem allar flugvélategundur félagsins eru af gerðinni 737.
MAX-þoturnar telja 9 prósent af öllum flotanum en 462 þotur eru af gerðinni Boeing 737-700 og 207 þotur af gerðinni Boeing 737-800.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.