flugfréttir
Verða með 30 risaþotur í sumar
- Fljúga til 90% af áfangastöðunum í júlí
Flugfloti Emirates á flugvellinum í Dubai
Emirates stefnir á að vera með þrjátíu Airbus A380 risaþotur í notkun í sumar og verða þær notaðar í áætlunarflugi til 15 áfangastaða í heiminum.
Þrátt fyrir það þá verður ennþá 75% af risaþotuflota félagsins kyrrsettur áfram vegna heimsfaraldursins en
Emirates hefur í dag 119 risaþotur í flotanum.
Tim Clark, forstjóri Emirates, segir að félagið hafi að undanförnu verið að fljúga 15 til 20 risaþotum en í júlí mun
þeim fjölga um tíu þotur.
Meðal þeirra áfangastaða sem Emirates mun fljúga til með Airbus A380 í júlí eru Los Angeles, New York, Washington,
Toronto, London Heathrow, Manchester, Munchen, Frankfurt, Moskva, París, Vín, Amman, Kaíró, Jeddah
og Guanzhou í Kína.
Þá er Emirates að nálgast það að fljúga til 90 prósent af áfangastöðunum í leiðarkerfinu en í næsta mánuði mun
félagið fljúga 880 flugferðir í viku til 124 áfangastaða en í dag flýgur félagið til 115 áfangastaða. Þess má geta að
fyrir heimsfaraldurinn flaug félagið til 157 áfangastaða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.