flugfréttir
Norwegian skilar inn írska flugrekstrarleyfinu
Boeing 737-800 þota frá Norwegian
Norska flugfélagið Norwegian ætlar að skila inn írska flugrekstarleyfinu þrátt fyrir að dómstóll á Írlandi hefur tekið það fram að það sé nauðsynlegt fyrir félagið að halda írska flugrekstarleyfinu ef félagið ætlar sér að ná sér aftur á strik.
Írska dagblaðið Irish Independent greindi frá því í síðustu viku að Norwegian ætlar að hætta
starfsemi sinni á Írlandi en um 50 manns starfa á Írlandi í tengslum við starfsemi félagsins þar í landi.
Norwegian hefur tilkynnt starfsfólki sínu að félagið ætli sér að fækka flugrekstarleyfunum frá fimm niður í tvö
og yrði félagið því eingöngu með flugrekstarleyfi skráð í Noregi og í Svíþjóð.
Norwegian hefur verið með starfsemi sína á Írlandi með flugrekstrarleyfi fyrir dótturfélagið Norwegian Air
International (NAI) en félagið ætlar ekki að halda því dótturfélagi gangandi áfram.
Þá hefur stjórn Norwegian einnig ákveðið starfslok fyrir framkvæmdarstjóra félagsins, Jacob Schram, sem hefur
stýrt félaginu frá árinu 2019 en Geir Karlsen, fjármálastjóri félagsins, mun taka við forstjórastólnum hans í stað.
Stjórn félagsins kaus með meirihluta í gær að Schram myndi stíga til hliðar sem framkvæmdarstjóri frá og
með deginum í dag, 21. júní.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.