flugfréttir
Kynningardagur á flugnámi á Reykjavíkurflugvelli á morgun
Á staðnum verður hægt að bóka kynningarflug og skrá sig á kynningarfund á Ásbrú þar sem hægt er að skoða bóklega aðstöðu Flugakademíu Íslands og heimsækja flughermi skólans
Flugakademía Íslands mun halda opinn kynningardag fimmtudaginn 24. júní kl. 14-17 í verklegri aðstöðu skólans á Reykjavíkurflugvelli.
Gestum gefst þar tækifæri á að fræðast um einka- og atvinnuflugnám, skoða verklega aðstöðu skólans á Reykjavíkurflugvelli og hitta bæði kennara og nemendur. Frábært tækifæri fyrir þá sem hyggja á flugnám í framtíðinni.
Á staðnum verður hægt að bóka kynningarflug og skrá sig á kynningarfund á Ásbrú þar sem hægt er að skoða bóklega aðstöðu Flugakademíu Íslands og heimsækja flughermi skólans. Verkleg aðstaða Flugakademíu Íslands er bæði á Reykjavíkurflugvelli og Keflavíkurflugvelli og fer kennsla fram á báðum stöðum, eftir því hvað hentar hverjum nemanda.
Í sumar býður Flugakademía Íslands einnig upp á Flugbúðir fyrir ungt áhugafólk um flug og þau sem hyggja á nám innan fluggeirans. Um er að ræða vinsæl sumarnámskeið en gríðarlegur áhugi hefur verið fyrir námskeiðunum undanfarin ár enda eru þau upplagður vettvangur til að fá innsýn inn í flugheiminn.
Í Flugbúðunum er farið yfir allt það áhugaverðasta og skemmtilegasta í flugheiminum þar sem vettvangsferðir skipa stóran sess.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.