flugfréttir

Panta 270 þotur frá Boeing og Airbus fyrir 4.300 milljarða

- Munu fá nýja þotu afhenta á þriggja daga fresti árið 2023

30. júní 2021

|

Frétt skrifuð kl. 07:44

United Airlines hefur pantað 200 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX og sjötíu af gerðinni Airbus A321neo

Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur lagt inn eina stærstu pöntun sem bandarískt flugfélag hefur pantað í heilan áratug og er einnig um að ræða stærstu pöntun í sögu United Airlines.

United Airlines hefur pantað 270 farþegaþotur frá Boeing og Airbus og er pantanirnar metnar á 35 milljarða Bandaríkjadali sem samsvarar yfir 4.300 milljörðum króna. Þetta er stærsta pöntun sem bandarískt flugfélag hefur pantað á einu bretti frá því að American Airlines pantaði 460 þotur frá Boeing árið 2011.

Pöntunin til Boeing varðar 200 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX en af þeim eru 50 af gerðinni Boeing 737 MAX 8 og 150 verða af stærstu gerðinni, Boeing 737 MAX 10. Með þessu á United Airlines því von á að vera komið með 380 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX þegar þær hafa allar verið afhentar.

Pöntunin til Airbus varðar 70 þotur af gerðinni Airbus A321neo en ekki kemur fram hvort að félagið sé að panta A321LR eða Airbus A321XLR. United Airlines á þegar von á fimmtíu þotum af gerðinni Airbus A321XLR og mun félagið því enda með 120 þotur af gerðinni A321neo.

Með pöntuninni í dag á United Airlines von á 588 þotum á næstu árum en á næsta ári, árið 2022, mun félagið fá 40 þotur afhentar, 138 árið 2023 og 350 árið 2024 og árin eftir það. Þetta þýðir að United Airlines mun fá afhenta nýja þotu á þriggja daga fresti árið 2023.

United Airline sér fram á bjartari tíma framundan eftir kórónaveirufaraldurinn en í dag er algengt að um tvær milljónir farþega fljúgi í farþegaflugi í Bandaríkjunum daglega en til samanburðar voru aðeins um 100.000 farþegar sem flugu daglega í apríl í fyrra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga