flugfréttir
Kína undirbýr sig fyrir flugprófanir með 737 MAX
- Enn mánuðir í að MAX þoturnar fari að fljúga aftur í Kína
Kína á enn eftir að gefa grænt ljós á Boeing 737 MAX þoturnar
Flugmálayfirvöld í Kína eru að undirbúa fyrstu tilraunaflugferðirnar með Boeing 737 MAX þotunum sem er liður í því að gefa aftur út flughæfnisvottun fyrir þoturnar og afnema kyrrsetningu þeirra þar í landi.
Kínversk flugmálayfirvöld eru þau einu af stóru flugmálayfirvöldunum í heiminum sem eiga eftir
að aflétta kyrrsetningunni á meðan flest önnur lönd eru farin að fljúga MAX þotunum á ný.
Ennþá eru þó sennilega nokkrir mánuðir í að MAX þoturnar geta farið að fljúga á ný með farþega í Kína
en landið var það fyrsta til þess að kyrrsetja þoturnar í heiminum árið 2019 í kjölfar tveggja flugslysa.
Fram kemur að Boeing sé að undirbúa að senda til Kína hóp af 35 flugmönnum og flugvirkjum til þess að
aðstoða Kínverja við vottunarferlið og prófanirnar en flugmálayfirvöld í landinu gera strangar kröfur
til endurvottunarferlisins og er talið að viðskiptaerjur á milli Bandaríkjanna og Kína spili þar stórt hlutverk.
Kína er einn stærsti markaðurinn utan Bandaríkjanna er kemur að Boeing 737 MAX þotunum en þegar
þoturnar voru kyrrsettar árið 2019 var búið að afhenda 76 þotur til kínverskra flugfélaga auk þess
sem flugvélaleigur í landinu hafa pantað margar 737 MAX þotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.