flugfréttir
Ætla að ráða 2.000 flugmenn á Boeing 737 MAX þoturnar
Ryanair á von á 215 nýjum Boeing 737 MAX þotum á næstu árum en hefur fengið í dag fimm þotur afhentar
Ryanair hefur lýst því yfir að til standi að ráða um 2.000 flugmenn á næstu þremur árum í tengslum við nýju Boeing 737 MAX þoturnar en félagið fékk þær fyrstu afhentar um miðjan síðasta mánuð.
Ryanair á von á 215 Boeing 737 MAX þotum en félagið hefur nú fengið fimm fyrstu þoturnar eftir mikla seinkun sem rekja má bæði til kyrrsetningu þotnanna og til heimsfaraldursins.
Byrjað verður að ráða flugstjóra og verður flugstjórum á Boeing 737-800 þoturnar boðin staða fyrst á MAX þoturnar
áður en byrjað verður að bjóða aðstoðarflugmönnum að hefja þjálfun. Eftir það verður nýjum flugmönnum, sem
hafa verið í atvinnuflugmannsnámi á vegum Ryanair, boðið að hefja þjálfun.
Ryanair stefnir á að byrja að þjálfa áhafnir á Boeing 737 MAX þoturnar sem geta byrjað að fljúga þotunum
fyrir sumarið árið 2022.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.