flugfréttir
FAA kemur auga á nýtt vandamál á Boeing 787
Dreamliner-þotur í framleiðslu í verksmiðju Boeing í Suður-Karólínu
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa komið auga á nýtt vandamál í einhverjum af þeim Dreamliner-þotum sem framleiddar hafa verið sem enn á eftir að afhenda til viðskiptavina.
Um er að ræða annmarka eftir framleiðslu sem uppfylla ekki gæðastaðla og er farið fram á að Boeing lagfæri þessi
atriði áður en flugvélarnar verða afhentar.
Bandarísk flugmálayfirvöld segja að vandamálið sé að finna framan á nefi á nokkrum Boeing 787 þotum og komu sérfræðingar
auga á þessi atriði við ítarlega eftirlitsskoðun á þotunum sem gerð var þar sem verið var að taka út vinnubrögð
eftir lokasamsetningu.
Fram kemur að þessi atriði skapi enga hættu á flugi en verið er að athuga hvort að sama vandamál sé að finna
á þeim Dreamliner-þotum sem búið er að afhenda og eru nú þegar í áætlunarflugi.
Yfir 100 Dreamliner-þotur hafa nú hrannast upp hjá Boeing sem bíða þess að verða afhentar en Boeing gerði
hlé á afhendinum á Boeing 787 í maí í vor eftir að FAA lýsti yfir áhyggjum varðandi vandamál sem hafa uppgötvast að undanförnu sem
þarfnast lagfæringar.
Það var í ágúst í fyrra sem fyrst fór að bera aftur á vandamálum með Dreamliner-þoturnar og hafa komið upp
vandamál í rafkerfi, í samskeytum á klæðningum vélanna, í burðarþoli og í stélvængjum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.