flugfréttir
JetBlue lendir í fyrsta sinn í London
Airbus A321LR þota JetBlue í aðflugi að Heathrow-flugvellinum í London sl. þriðjudag
Bandaríska flugfélagið JetBlue flaug í vikunni sérstakt flug í fyrsta sinn yfir Atlantshafið frá New York til London með farþegaþotu af gerðinni Airbus A321LR.
Þotan hóf sig á loft frá Kennedy-flugvellinum í New York sl. mánudag og lenti á London Heathrow á þriðjudag
en með fluginu er verið að þjálfa áhafnir fyrir fyrirhugað áætlunarflug til London sem hefst í ágúst.
Flugið tók 6 klukkustundir og 10 mínútur en fyrsta áætlunarflug JetBlue yfir Atlantshafið hefst þann 11. ágúst
næstkomandi en þangað til mun félagið fljúga tvær tilraunaflugferðir til viðbótar yfir hafið.
Næst verður flogið á morgun, 16. júlí og svo til baka til New York þann 19. júlí en meðal annars er verið að æfa flugmenn og
flugfreyjur og flugþjóna um borð fyrir áætlunarflug með farþega en fram kemur að nokkrir starfsmenn á vegum
bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) verða einnig um borð í þessum flugferðum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.