flugfréttir

Aðeins 4 milljónir farþega um Heathrow á hálfu ári

- Tapa 836 milljónum króna á dag

26. júlí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 12:17

Frá Heathrow-flugvellinum í London

Stjórn Heathrow-flugvallarins í London hvatti í dag bresk stjórnvöld til þess að slaka á ferðatakmörkunum og opna fyrir ferðalög meðal þeirra farþega sem hafa verið fullbólusettir gegn COVID-19.

Heathrow-flugvöllurinn hefur birt afkomuskýrslu sína eftir fyrri árshelming þessa árs en þar kemur fram að flugvöllurinn hafi nú þegar tapað 505 milljörðum króna frá upphafi heimsfaraldursins og þar af 150 milljörðum króna frá áramótum fram til lok júní á þessu ári sem jafngildir því að Heathrow-flugvöllur tapi um 836 milljónum króna á hverjum degi.

John Holland-Kaye, framkvæmdarstjóri Heathrow-flugvallarins, segir að efnahagur Bretland sé að ná sér eftir einn versta faraldur sögunnar en sá samt eftir á til samanburðar við önnur lönd í Evrópu sem eru komin lengra á leið í bataferlinu þar sem búið er að slaka á ferðatakmörkunum víðsvegar í álfunni.

Fyrir heimsfaraldurinn var Heathrow-flugvöllur stærsti og annasamasti flugvöllurinn í Evrópu en færri en 4 milljónir farþega fóru um Heathrow á fyrri árshelmingi ársins en aðeins tók 18 daga að ná þeim farþegafjölda árið 2019.

Holland-Kaye telur að bjartari tímar séu framundan fyrir Heathrow-flugvöll þar sem bresk stjórnvöld stefna á að leyfa fullbólusettum farþegum að fljúga á milli Bretlands og Evrópu og Bandaríkjanna í lok júlí en þrátt fyrir það hefur smitum fjölgað í Bretlandi að undanförnu.

Fram kemur að farþegaflug á stærstu flugleiðunum á milli Bandaríkjanna og Evrópu hefur aukist um 50 prósent samanborið við árið 2019 en á sama tíma er farþegaflug milli Bretlands og Bandaríkjanna aðeins 8 prósent af því sem var fyrir heimsfaraldurinn.

Fraktflug um Heathrow-flugvöll hefur dregist saman um 18 prósent miðað við árið 2019 en á sama tíma hefur flug með frakt aukist um 9% að meðaltali á flugvöllunum í Frankfurt og í Amsterdam.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga