flugfréttir
Mango stöðvar flugrekstur og aflýsir öllu flugi
Boeing 737-800 þota frá flugfélaginu Mango
Suður-afríska lágfargjaldaflugfélagið Mango Airlines hefur aflýst öllu flugi og lagt niður allt áætlunarflug frá og með deginum í dag vegna vangoldinna skulda við flugumferðarstjórnina í Suður-Afríku.
Aðeins er einn dagur liðinn frá því að flugfélagið lýsti því yfir að rekstrinum hefði verið bjargað fyrir horn
með fjárveitingu í formi einskonar gjaldþrotaverndar frá móðurfélaginu South African Airways
en rekstur flugfélagsins hefur gengið mjög
brösulega að undanförnu.
Fjölmargir farþegar sem áttu bókað flug með Mango eru nú strandaglópar á flugvöllunum
í Jóhannesarborg og í Höfðaborg og hefur mörgum gengið
erfiðlega að bóka flug með öðrum flugfélögum til þess að komast á áfangastað.
Einu flugfélögin sem fljúga til sömu áfangastaða og Mango eru FlySafair og LIFT en svo virðist
sem að flest flug með þeim flugfélögum eru uppbókuð en bæði flugfélögin eru að skoða möguleikann á
því að bæta við aukaflugferðum til þess að koma farþegum með Mango á áfangastað.
William Ndlovu, framkvæmdarstjóri Mango, segir að áframhaldandi viðræður séu í gangi og sé vonast
til þess að hægt verði að leysa málið sem fyrst og koma starfseminni aftur í gang.
Framtíð flugfélagsins Mango hefur verið í óvissu í rúmt ár eða frá því að heimsfaraldurinn skall á
og átti félagið í vanda með að greiða leigugjöld til eigenda flugvélanna í flotanum í vor og var orðrómur
uppi í maí um að félagið gæti þurft að stöðva flugrekstur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.