flugfréttir
Risaþotur Singapore Airlines snúa aftur í notkun eftir geymslu
Airbus A380 risaþota frá Singapore Airlines
Singapore Airlines er byrjað að undirbúa að taka fleiri Airbus A380 risaþotur í notkun en félagið lagði risaþotunum í fyrra vegna heimsfaraldursins.
Singapore Airlines sótti fyrstu Airbus A380 risaþotuna úr langtímageymslu í febrúar en sú hafði verið
í geymslu í Alice Springs í Ástralíu en nú hefur félagið sótt aðra risaþotu sem var flogið frá Alice Springs í dag.
Þotunni var flogið til Sydney þar sem hún mun gangast undir viðhaldsskoðun áður en hún verður
ferjuð til Singapore og því næst hefst undirbúningur fyrir áætlunarflug að nýju.
Singapore Airlines hefur haft 19 risaþotur í flotanum en til stendur að taka sjö úr umferð og hafa því 12
risaþotur í notkun áfram á næstu árum.
Singapore Airlines var fyrsta flugfélagið til þess að fá Airbus A380 risaþotuna afhenta árið 2007
og stefnir félagið á að nota þær áfram en sum flugfélög á borð við Air France hafa ákveðið að hætta
alfarið með Airbus A380 vegna heimsfaraldursins.
Hinsvegar ætlar ástralska flugfélagið Qantas að halda áfram að nota sínar risaþotur og segir
félagið að það sjái fram á mikla þörf fyrir A380 þoturnar um leið og heimsfaraldrinum lýkur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.