flugfréttir
DHL Express pantar tólf rafmangsflugvélar
Tölvugerð mynd af rafmangsflugvélinni Eviation Alice í litum vöruflutningarisans DHL Express
Vöruflutningaflugfélagið DHL Express hefur gert samning við fyrirtækið Eviation um pöntun á tólf rafmangsflugvélum.
Flugvélarnar verða notaðar til þess að fljúga smáar vörur frá stórum flugvöllum
til smærri bæja í innanlandsdreifikerfi félagsins í Bandaríkjunum.
Flugvélarnar, sem nefnast Eviation Alice, geta borið allt að 1.1 tonn af frakt og flogið í beinu
flugi yfir 900 kílómetra með hraða upp á 400 km/klst sem samsvarar 220 hnútum (knots).
Pöntunin er hluti af stefnu DHL Express sem er að draga úr kolefnalosun í fraktflugi
á næstu árum og auka hagræðingu en Eviation Alice rafmangsflugvélarnar munu leysa
af hólmi minni flugvélar sem hafa þjónað sambærilegum tilgangi undanfarin ár.
Eviation er sprotafyrirtæki sem einblínir á framleiðslu á rafmangsflugvélum bæði fyrir fraktflug
og farþegaflug og hefur fyrirtækið höfuðstöðvar sínar í Washington-fylki í Bandaríkjunum.
Hleðslutími á Eviation Alice flugvélinni er um hálftími eða svipaður tími og það tekur
að setja eldsneyti á þær flugvélar sem DHL Express hefur í flotanum sem munu víkja
fyrir rafmangsflugvélunum.
DHL Express mun fá fyrstu Eviation Alice flugvélarnar afhentar árið 2024
Stefnt er á að DHL Express geti farið að nota Eviation Alice flugvélarnar árið 2024
og mun tilgangur þeirra að mestu leyti verða að koma vörum til skila til neytenda sem hafa
pantað vörur á netinu erlendis frá.
Samkeppnisaðilinn UPS (United Parcel Service) hefur einnig gert samning um pöntun í sambærilega rafmangsflugvél sem nefnist EVAs sem er í þróun hjá fyrirtækinu Beta
Technologies en sú flugvélategund kom einnig til greina hjá DHL Express.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.