flugfréttir

195.000 farþegar flugu með Icelandair í júlí

- 167 prósent fjölgun í millilandaflugi á milli ára

6. ágúst 2021

|

Frétt skrifuð kl. 12:37

Boeing 757-200 þota Icelandair í lendingu í Brussel í Belgíu

Gríðarleg aukning varð á farþegum sem flugu með Icelandair í seinasta mánuði en í júlí fjölgaði farþegum í millilandaflugi um 167 prósent á milli ára.

Í júlí síðastliðnum voru um 195.200 farþegar sem flugu með Icelandair en í júlí í fyrra voru farþegar í millilandaflugi 73.400 talsins. Þess má geta að í júlí árið 2019, eða fyrir heimsfaraldurinn, voru 564.000 farþegar sem flugu með Icelandair í júlímánuði og voru farþegar í júlí sl. því 34% af þeim fjölda eða um þriðjungur.

Þeir farþegar sem flugu til Íslands í júlí sl. voru 116.700 talsins en voru 58.300 í sama mánuði í fyrra og þá voru 27.700 sem flugu frá landinu í síðasta mánuði samanborið við 13.400 í fyrra.

Tengiflugsfarþegar í júlí sl. voru 50.900 sem er mesti fjöldi sem mælst hefur frá því í febrúar árið 2020.

Sætanýtingin í júlí var 70.4% en í júlí í fyrra var sætanýtingin 70.5 prósent en þá voru mun færri flugvélar í notkun í leiðarkerfi Icelandair.

Þá voru 24.200 farþegar sem flugu með Icelandair í innanlandsflugi eða 2.000 farþegum fleiri en í júní sl. en 152% fleiri ef borið er saman við júlí árið 2020 þegar 9.600 farþegar flugu í innanlandsflugi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga