flugfréttir

Ætla að ráða 4.600 flugmenn á næstu 9 árum

- Wizz Air stefnir á að ráða 300 nýja flugmenn fyrir lok ársins

6. ágúst 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:49

Flugfloti Wizz Air

Ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air stefnir á að ráða um 4.600 flugmenn á næsta áratuginn eða fram til ársins 2030.

Wizz Air hefur í dag til umráða um 150 flugmenn sem eru að fljúga flugflota félagsins þessa daganna auk þess sem félagið stefnir á að ráða 300 flugmenn á næstu mánuðum fram til áramóta í tengslum við aukin umsvif eftir heimsfaraldurinn.

Wizz Air hefur haft stór markmið alveg frá því að heimsfaraldurinn byrjaði og spáði félagið því vorið 2020 að Wizz Air myndi fljúga til allra áfangastaðanna í leiðarkerfinu sumarið 2021 þrátt fyrir ástandið í heiminum.

Heiko Holm, rekstarstjóri Wizz Air

Í yfirlýsingu sem flugfélagið sendi frá sér í dag kemur fram að félagið sér fram á að ráða alls 4.600 flugmenn á næstu 9 árum en félagið á von á 234 nýjum þotum frá Airbus af gerðinni Airbus A320neo, A321neo og A321XLR.

„Það er mikil ánægja að vita að framundan eru ráðningar á þúsundum flugmanna á sama tíma og við munum auka enn frekar umsvif okkar í Evrópu og víðar. Við erum stolt af þeim tækifærum sem við eigum eftir að skapa með samkeppnishæfum launum og fríðindum til allra áhafna sem eiga eftir að bætast við í hópinn og sveigjanlegra vakta“, segir Heiko Holm, flugrekstarstjóri Wizz Air.

Félagið hefur í dag 144 þotur í flotanum sem þýðir að flugfloti Wizz Air mun fara yfir 500 þotur eftir nokkur ár þegar allar þær þotur sem félagið hefur pantað hafa verið afhentar auk fleiri flugvélar sem félagið á eftir að panta á næstunni.

Wizz Air flýgur í dag til yfir 190 áfangastaða í 49 löndum og eru flugleiðirnar alls 800 talsins en ráðning á um 4.600 flugmönnum á næstu árum þýðir að tækifæri munu skapast fyrir störf í fjölmörgum löndum í Evrópu, Miðausturlöndum og mögulega í Afríku en félagið hefur verið með augastað á fleiri áfangastöðum í þeirri heimsálfu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga