flugfréttir
Ryanair yfirgefur London Southend flugvöllinn
- Wizz Air verður eina flugfélagið til þess að fljúga um flugvöllinn
Frá London Southend flugvellinum
Ryanair hefur ákveðið að hætta að fljúga um Southend-flugvöllinn í London en stjórn flugvallarins reynir nú að sannfæra lágfargjaldafélagið írska um að halda áfram að fljúga um völlinn í stað þess að leggja niður allt flug til og frá vellinum í haust.
Southend-flugvöllurinn missti easyJet sem hætti að fljúga um flugvöllinn í ágúst í fyrra
vegna kórónaveirufaraldursins en félagið byrjaði að fljúga til London Southend árið 2012
og nú ætlar Ryanair að hætta einnig að fljúga um flugvöllinn og verður Wizz Air því eina flugfélagið
sem mun fljúga reglubundið áætlunarflug um völlinn.
Ryanair flýgur frá London Southend til 8 áfangastaða sem eru Alicante, Búkarest, Faro, Malaga,
Brest, Corfu, Mallorka og Reus en félagið mun fljúga síðustu flugin til allara þessa áfangastaða frá
27. til 30. október.
Esken, rekstarfélag London Southend flugvallarins, segir að þessi ákvörðun Ryanair stangist
á við samning sem félagið gerði við flugvöllinn þar sem samið var um að það þyrfti að koma
til umtalsverða breytinga í efnahagsumhverfinu til að réttlæta að félagið myndi hætta að fljúga
um flugvöllinn.
David Shearer, framkvæmdarstjóri Esken, segir að viðræður standi yfir við nokkur önnur flugfélög
og sé það markmið fyrirtækisins að efla starfsemi flugvallarins með fjölbreyttu úrvali af flugfélögum.
Ryanair hefur haft tvær þotur staðsettar á London Southend flugvellinum en félagið mun færa
þær yfir á annan flugvöll fyrir vetrartímann til þess að auka hagræðingu í leiðarkerfinu.
Shearer segir að fjárhagsstaða London Southend flugvallarins sé samt sem áður mjög góð
og er séð fram á mikil tækifæri á næsta ári þegar flugiðnaðurinn verður farinn að taka betur
við sér eftir núverandi ástand vegna heimsfaraldursins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.