flugfréttir

Nýtt flugfélag hætti starfsemi eftir aðeins einn dag í rekstri

- Lattitude flaug aðeins þrjú áætlunarflug en stefna á að byrja aftur í haust

9. ágúst 2021

|

Frétt skrifuð kl. 12:29

Airbus A319 þotan í flota Lattitude flugfélagsins

Nýtt flugfélag á Kanaríeyjum hefur hætt starfsemi sinni tímabundið eftir að hafa aðeins flogið áætlunarflug í einn dag sem var fyrsti dagur félagsins en félagið ákvað fimm dögum síðar að fresta öllu frekara flugi.

Flugfélagið, sem nefnist Lattittude, hefur eina Airbus A319 þotu í rekstri en félagið hét áður Canarian Airways. Félagið flaug þrjú áætlunarflug þann 25. júlí sl. sem voru flug frá Tenerife til Vigo, frá Vigo til Tenerife og frá Tenerife til Madríd.

Þann 30. júlí sl. gaf félagið út yfirlýsingu á Twitter þar sem fram kom að öllu flugi hafi verið frestað fram á haust með von um að starfsemin hefjist að nýju fyrir vetrartímann.

Ástæðan fyrir því að Lattitude hefur lagt árar í bát virðist vera sú staðreynd að Spánn er orðin rauður á sóttvarnarkorti Evrópu og hefur félagið fundið fyrir dræmum bókunum þar sem margir ferðamenn eru smeikir við að bóka flug og hótel á Kanaríeyjum eins og staðan er orðin.

Airbus A319 þotan sem Lattitude hefur til umráða kom frá spænska flugfélaginu One Airways en var upphaflega afhent til færeyska flugfélagsins Atlantic Airways.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga