flugfréttir

Nýtt flugfélag á Indlandi íhugar pöntun í 80 737 MAX þotur

11. ágúst 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:29

Fram kemur að nýja flugfélagið gæti pantað allt að 80 Boeing 737 MAX þotur ef þær verða fyrir valinu

Boeing er sagt vera í viðræðum við nýtt flugfélag á Indlandi sem verið er að stofna sem hyggst leggja inn stóra pöntun í Boeing 737 MAX þoturnar.

Nýja flugfélagið heitir Akasa og er það stofnað af milljarðamæringnum Rakesh Jhunjhunwala en félagið hefur einnig átt í viðræðum við Airbus þar sem Airbus A320neo þoturnar koma einnig til greina en þær þotur eru þó ekki tilbúnar til afhendingar fyrr en eftir nokkur ár.

Samkvæmt heimildum þeirra sem þekkja til þá gæti svo farið að viðræðurnar fari út um þúfur þar sem ekki er um formlegar viðræður að ræða en ef Boeing verður fyrir valinu myndi flugvélaframleiðandinn ná að hasla sér betur völl á markaðnum á Indlandi þar sem Airbus hefur sterkari stöðu fyrir.

Akasa er sagt vera á höttunum eftir að minnsta kosti 70 farþegaþotum sem þurfa að vera afhentar á næstu fjórum árum en sjötíu Boeing 737 MAX 8 þotur eru metnar á yfir eitt þúsund milljarða króna samkvæmt listaverði en félagið myndi þó fá veglegan afslátt af þeirri upphæð.

Aðeins eitt flugfélagið á Indlandi hefur Boeing 737 MAX þotur í flotanum í dag sem er SpiceJet en Jet Airways var komið með 737 MAX í flotann áður en félagið hætti flugrekstri vegna skulda árið 2019.

Fram kemur að ákvörðun flugfélagsins Akasa ræðst á því hvort að félagið fái úthlutað flugrekstarleyfi frá flugmálayfirvöldum á Indlandi á næstunni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga