flugfréttir
Emirates endurheimtir 90 prósent af leiðarkerfi sínu
- Stefna aftur á 6 dagleg flug á London Heathrow í haust
Frá flugvellinum í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum
Emirates býr sig nú undir að endurheimta umsvif sín að nýju eftir kórónaveirufaraldurinn og stefnir flugfélagið á að hefja að nýju flug til 29 borga með yfir 270 flugferðum á viku til viðbótar til tólf landa sem eru orðin græn eða gul samkvæmt sóttvarnarkortum.
Í október mun félagið bæta við tíðni til áfangastaða í Bretlandi upp í 73 flugferðir á viku og þar á meðal verður flogið sex sinnum á dag á London Heathrow flugvöllinn og tvisvar á dag með Airbus A380 risaþotunni til Manchester. Þá verður flogið tíu sinnum í viku til Birmingham og daglega til Glasgow.
Frá og með deginum í dag mun Emirates fljúga þrisvar á dag til London Heathrow
og verða öll flugin flogin með Airbus A380 risaþotunni.
Í ágúst og september mun félagið hægt og rólega auka tíðnina til London Heathrow og um miðjan október verður tíðnin aftur komin í sex áætlunarflug á dag og verða fjórar af þeim farnar með Airbus A380.
Emirates flýgur í dag til tólf borga í Bandaríkjunum með yfir 70 vikuleg flug en í þessum mánuði mun félagið auka tíðnina til Houston, Boston og til San Francisco.
Í dag flýgur félagið til 120 áfangastaða í heiminum og hefur Emirates náð að endurheimta 90% af áfangastöðum sínum sem félagið flaug til fyrir heimsfaraldurinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.