flugfréttir
Flugmaður veiktist í aðflugi í Búkarest
Þotur af gerðinni Boeing 737-300 í flota TAROM flugfélagsins
Flugmaður um borð í farþegaþota frá rúmenska flugfélaginu TAROM veiktist skyndilega þegar þotan var í aðflugi að flugvellinum í Búkarest á dögunum.
Þotan sem er af gerðinni Boeing 737-800 var í áætlunarflugi frá Schiphol-flugvellinum í Amsterdam
til Búkarest í Rúmeníu þann 4. ágúst sl. með 76 farþega um borð og sex manna áhöfn þegar atvikið
átti sér stað.
Þotan var á lokastefnu að Otopeni-flugvellinum þegar aðstoðarflugmaðurinn, sem var við stjórn
vélarinnar, fann fyrir sársauka og veiktist skyndilega. Flugstjóri vélarinnar tók við stjórninni
og lenti þotunni nokkrum mínútum síðar.
Í yfirlýsingu frá TAROM segir að samkvæmt verklagsferlum hafi flugstjórinn tekið við stjórninni
þegar flugmaðurinn veiktist og voru sjúkraliðar sem biðu eftir vélinni og var flugmaðurinn
fluttur á sjúkrahús í kjölfarið eftir stutta læknisskoðun. Fram kemur að líðan flugmannsins
sé stöðug.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.