flugfréttir
Fyrsta rafmagnsflugvélin frá Embraer flýgur sitt fyrsta flug
Rafmagnsflugvélin EMB-203 Ipanema frá Embraer
Fyrsta rafmagnsflugvélin sem brasilíski flugvélaframleiðandinn Embraer hefur framleitt hefur flogið sitt fyrsta flug en flugvélin nefnist EMB-203 Ipanema.
Fyrsta tilraunaflugið var flogið frá flugvellinum í Gaviao Peixoto í Brasilíu en í yfirlýsingu frá Embraer kemur fram að
þar sem heimsfaraldurinn fer að lýða undir lok mun framleiðandinn byrja að snúa sér aftur
að þeim áskorunum sem hann stóð frammi fyrir sem er að einblína á framtíðarstefnu í fluginu
er kemur nýjum orkugjöfum.
Fyrir lok síðasta árs tilkynnti Embraer um samstarf við brasilíska orkufyrirtækið EDP um
þróun á rafmagnsflugvél og var stefnan að fyrsta flugið myndi eiga sér stað á þessu ári.
Tilraunaflugið fór fram á Gaviao Peixoto flugvellinum í Brasilíu
Í fyrsta fluginu voru framkvæmdar prófanir með rafmagnsmótorinn, rafhlöður og hleðslu, ofhitnun
rafkerfis á flugi auk annarra atriða. Rafmótorinn var framleiddur af brasilíska fyrirtækinu
WEG og EDP sá um að þróa rafhlöðuna.
Embraer sér fyrir sér að mögulega væri hægt að nota blandaða orkugjafa fyrir minni farþegaþotur
á næstu árum og þróa E-þoturnar með þeim hætti að þær verða knúnar áfram fyrir blöndu af vetni
og raforku í náinni framtíð en Embraer setur stefnuna á kolefnislaust flug fyrir árið 2050.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.