flugfréttir

Þýska ríkið selur fjórðungshlut sinn í Lufthansa

17. ágúst 2021

|

Frétt skrifuð kl. 09:58

Lufthansa var vongott við upphaf ársins um að sumarið yrði mun betra en í fyrra og svo virðist sem að það hafi gengið upp

Þýska ríkið ætlar að selja þau 20 prósent sem félagið á í Lufthansa þar sem að góður árangur virðist hafa náðst í að koma rekstri flugfélagsins þýska aftur á strik eftir heimsfaraldurinn.

Efnahagsstöðugleikasjóður þýska ríkisins ætlar sér að selja um fjórðung af hlut sínum, sem samsvarar 5% hlut í Lufthansa, á næstu vikum en flugfélagið fékk 6 milljarða evra styrk frá þýska ríkinu í fyrra eftir að rekstur félagsins var næstum hruninn vegna ástandsins sem skapaðist í flugiðnaðinum.

Lufthansa birti þann 5. ágúst sl. afkomuskýrslu sína eftir annan ársfjórðung og kom þar fram að dregið hafði úr taprekstri félagsins með aukinni eftirspurn eftir farþegaflugi og fraktflugi og þá sér Lufthansa fram á að eftirspurnin eigi eftir að aukast enn frekar á næstunni.

Þá hafði Lufthansa gert ráð fyrir að draga úr rekstarkostnaði upp á 3.5 milljarða evra fyrir árið 2024 vegna ástandsins með skerðingu á flugflota og fækkun starfsmanna en fram kemur að þær aðgerðir séu að lagast mun hraðar en gert var ráð fyrir.

Fjármálastjóri Lufthansa segir að flugfélagið ætli sér að auka lausafjárstöðu sína til þess að geta farið að greiða af lánum til baka til þýska ríkisins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga