flugfréttir

ANA byrjar að fljúga risaþotunum aftur

18. ágúst 2021

|

Frétt skrifuð kl. 18:20

Risaþota frá ANA (All Nippon Airways) í lendingu á Narita-flugvellinum í Tókýó í Japan

Japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) hefur hafið aftur farþegaflug með Airbus A380 en risaþotur félagins hafa verið í langtímageymslu í tæpa 18 mánuði.

ANA lagði risaþotunum þann 24. mars í fyrra um leið og Bandaríkin lokaði landamærum sínum með miklum ferðatakmörkunum vegna heimsfaraldursins en áætlunarflug ANA milli Narita-flugvallarins í Tókýó og Honolulu á Hawaii var þá eina flugleiðin sem félagið flaug með risaþotunum.

Risaþotur ANA hafa flogið sérstakt útsýnisflug með farþega sem boðið var upp á í fyrra og á þessu ári auk þess sem þoturnar voru ferjaðar nokkrum sinnum í viðhaldsskoðun í borginni Xiamen í Kína.

ANA flaug fyrsta áætlunarflugið að nýju með Airbus A380 þann 9. ágúst sl. frá Tókýó til Honolulu.

Flugfélagið japanska hefur þrjár Airbus A380 risaþotur í flotanum en tvær fystu þoturnar voru afhentar í mars og í maí árið 2019 en sú þriðja var afhent í október í fyrra en hafði verið í geymslu í Toulouse í Frakklandi áður en hún var ferjuð til Tókýó.

Af þeim 13 flugfélögum sem hafa risaþoturnar í flota sínum eru að eins tvö flugfélög sem eru að nota þoturnar í dag í reglubundnu áætlunarflugi sem eru Emirates og China Southern Airlines.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga