flugfréttir
Korean Air ætlar að hætta með A380 innan fimm ára
- Boeing 747-8 fer úr flotanum eftir 10 ár
Airbus A380 risaþota í flota Korean Air
Suður-kóreska flugfélagið Korean Air hefur tekið ákvörðun um að hætta með allar Airbus A380 risaþoturnar innan fimm ára.
Þetta segir Walter Cho, framkvæmdarstjóri flugfélagsins, og mun þetta einnig ná yfir þær sex risaþotur
sem eru í flota Asiana Airlines þar sem að Korean Air mun yfirtaka rekstur þess flugfélags á næstu
misserum.
„A380 risaþotan mun yfirgefa flota Korean Air á næstu fimm árum og sömu örlög bíða Boeing 747-8
júmbó-þotnanna eftir 10 ár“, segir Cho í viðtali við flugfréttavefinn Flightglobal.
Korean Air hefur tíu A380 þotur í flotanum en sú elsta er 10 ára gömul á meðan yngsta þotan er 7
ára gömul en í dag er aðeins ein risaþota í reglulegri notkun hjá flugfélaginu.
Þrátt fyrir þessi áform þá ætlar Korean Air að koma risaþotunum á loft að nýju í haust og áætlar félagið
að fljúga þeim meðal annars til London Heathrow, Parísar, Guangzhou, Bangkok, Los Angeles og
til New York.
Korean Air verður því áttunda flugfélagið sem ákveður að hætta með Airbus A380 risaþotuna en
önnur flugfélög sem hafa ákveðið að hætta með risaþoturnar eru Thai Airways, Air France, Hi Fly,
Etihad Airways, Qatar Airways og Malaysia Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.