flugfréttir
Breiðþota hóf flugtaksbrun á akbraut á Newark-flugvelli
Airbus A330-300 breiðþota frá Turkish Airlines
Farþegaþota af gerðinni Airbus A330-300 frá Turkish Airlines hóf flugtaksbrun á akbraut á Newark Liberty flugvellinum í New Jersey í Bandaríkjunum fyrr í þessum mánuði en þotan hætti við flugtak eftir fyrirskipun frá flugumferðarstjórum.
Þotan var á leið í áætlunarflug frá Newark til Istanbúl í Tyrklandi og höfðu flugmennirnir fengið
flugtaksheimild á braut 22R en þveruðu þá braut og fóru í brautarstöðu á akbraut P (taxiway Papa) og hófu flugtaksbrun.
Flugumferðarstjórar urðu varir við að þotan var í flugtaki á akbraut og létu flugmennina vita
og hættu þeir við flugtakið þegar þotan var komin á hraða sem samsvarar 90 hnútum (kts).
Þotan staðnæmdist um 1.4 kílómetra niður eftir brautinni og yfirgaf þotan brautina og gáfu flugumferðarstjórar
fyrirmæli um að aka á biðstað þar sem beðið var í 45 mínútur til þess að leyfa bremsunum að kólna á meðan.
Því næst fengu flugmennirnir heimild til þess að aka aftur í brautarstöðu að braut 22R og fór þotan
í loftið áleiðis til Istanbúl um einni klukkustund eftir að hætt var við flugtakið.
Að sögn eins farþega sem var um borð í vélinni ávarpaði flugstjórinn farþega og sagði að hætt
hefði verið við flugtakið vegna tæknilegs vandamáls sem kom skyndilega upp.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.