flugfréttir
Alþjóðlegt drónaverkefni við Egilsstaðaflugvöll
Dróna á vegum norska fyrirtækisins Norwegian Special Mission (NSM) verður flogið í nágrenni Egilsstaðaflugvallar
Dróna á vegum norska fyrirtækisins Norwegian Special Mission (NSM) verður flogið í nágrenni Egilsstaðaflugvallar dagana 23-25. ágúst 2021.
Verkefnið er gert í samvinnu við tékknesk-svissneska fyrirtækið Primoco UAV SE, Isavia Innanlandsflugvelli og Isavia ANS en markmið verkefnisins er að safna gögnum sem styðja við að drónar verði notaðir við flugprófanir á búnaði flugvalla í framtíðinni.
Niðurstöður flugprófana drónans verða bornar saman við gögn sem áður hafa fengist úr flugprófunum flugvélar Isavia ANS. Dróninn er af tegundinni Primoco One 150 model með tæplega 5 metra vænghaf og vegur 150 kg.
Dróninn á flugbrautinni á Egilsstaðarflugvelli
Isavia kemur að verkefninu með því að leggja fram gögn úr flugprófunum sem hafa verið framkvæmdar með flugprófanavél Isavia ANS.
Flugstjórnarmiðstöðin hefur sett upp sérstakt svæði fyrir drónann til að vinna innan og sjá flugumferðarstjórar um að aðskilja hann frá annarri blindflugsumferð en starfsmenn Egilsstaðaflugvallar sjá um alla aðra aðstoð við flugið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.