flugfréttir

Boeing 737 MAX færi leyfi til þess að fljúga á ný á Indlandi

30. ágúst 2021

|

Frétt skrifuð kl. 15:47

Boeing 737 MAX þota í litum SpiceJet

Boeing 737 MAX þotan hefur fengið leyfi til þess að hefja flug að nýju á Indlandi en indversk flugmálayfirvöld hafa gefið út flughæfnisvottun fyrir MAX þotunum eftir tveggja og hálfs árs kyrrsetningu.

Flugmálayfirvöld á Indlandi hafa ákveðið að gera ekki sínar eigin kröfur varðandi þau atriði sem 737 MAX þoturnar þurfa að uppfylla til að geta hafið sig til flugs að nýju og fara flugmálayfirvöld þess í stað eftir lista frá flugmálayfirvöldum í Evrópu (EASA).

Indverska flugfélagið SpiceJet er í dag eina indverska flugfélagið sem hefur Boeing 737 MAX þotur í flota sínum en félagið verður þó ekki það eina til að fljúga MAX þotunum á Indlandi þar sem indversk flugmálayfirvöld gáfu erlendum flugfélögum leyfi til þess að fljúga þotunum til Indlands í apríl.

Í dag eru 34 flugfélög í heiminum sem fljúga Boeing 737 MAX þotunum og eru 344 MAX þotur í notkun um víða veröld en þá eru 209 þotur til viðbótar sem eru enn í geymslu eða ekki í reglulegri notkun.

Í dag á Boeing eftir að smíða 4.070 Boeing 737 MAX þotur sem verða afhentar til 74 flugfélaga sem ýmist hafa ekki fengið neinar þotur afhentar eða hafa þegar fengið einhverjar í flotann og eiga von á fleirum.

Þá kemur fram að af 195 löndum í heiminum þá hafa flugmálayfirvöld í 175 löndum gefið út leyfi fyrir Boeing 737 MAX þotunni en flugmálayfirvöld í Kína eiga til að mynda enn eftir að gefa út flughæfnisvottun fyrir Boeing 737 MAX þotunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga