flugfréttir
Efast um að risapöntun til Boeing eigi sér stað á þessu ári
Farþegaþotur Ryanair
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segist ekki eiga von á því að lágfargjaldafélagið írska eigi eftir að leggja inn risapöntun til Boeing á þessu ári í fleiri Boeing 737 MAX farþegaþotur.
Ryanair á í dag von á 210 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 200 en í júlí kom fram að svo gæti farið
að félagið myndi panta allt að 250 þotur til viðbótar á þessu ári í stærstu tegundina, Boeing 737 MAX 10.
O´Leary sagði á blaðamannafundi í dag að það kæmi á óvart ef hægt væri að ná samningum um rétt
verð við Boeing á þessu ári en áður hafði komið fram að Ryanair myndi aðeins leggja inn pöntun í 737 MAX 10
fyrir rétt verð.
O´Leary segir að hraðinn á samningaviðræðunum ræðst af Boeing og kemur fram að ný pöntun yrði álíka
stór, ef ekki stærri, en sú sem Ryanair hefur nú þegar inni á borði hjá Boeing.
„Ef við náum sáttum um verðið þá væri ég auðvitað til í að sjá Ryanair halda áfram að stækka með þeim hraða að flotinn væri að fá 50 nýjar þotur á ári. Þannig að á næstu fjórum til fimm árum værum við að tala um 200 til 250 nýjar þotur“, segir O´Leary.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.