flugfréttir
Fór í flugtak meðfram brautarkanti í stað miðlínu
Airbus A321 þota frá American Airlines á flugvellinum í Los Angeles (myndin tengist ekki fréttinni beint)
Atvik átti sér stað á McCarran-flugvellinum í Las Vegas í Bandaríkjunum í vikunni er farþegaþota af gerðinni Airbus A321 frá American Airlines tók sér brautarstöðu með nefhjólið stillt upp með fram hægri kanti brautarinnar.
Fram kemur að flugmenn þotunnar, sem var á leið til Charlotte í Norður-Karólínu þann 28. ágúst sl. hafi óvart
ruglast á miðlínuljósunum og tekið sér stöðu með nefhjólið á kantljósunum (runway edge lights) í hægri jaðri brautarinnar.
Þotan hóf flugtaksbrun en flugmennirnir áttuðu sig fljótlega á mistökunum og færðu sig yfir að miðlínunni þegar leið á brunið
og hóf þotan sig til lofts án þess að snúa við og lenti nokkrum klukkustundum síðar í Charlotte.
Atvikið átti sér stað klukkan 23:30 að staðartíma en fram kemur að eftir lendingu í Charlotte hafi þotan verið á jörðu niðri í þrjár
klukkustundir vegna skoðunnar áður en henni var flogið aftur.
Í yfirlýsingu frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) kemur fram að 15 flugbrautarljós hafi verið brotin á braut 08L á flugvellinum
í Las Vegas vegna atviksins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.