flugfréttir

Heathrow kallar enn eftir aðgerðum til að auka flugumferð

13. september 2021

|

Frétt skrifuð kl. 14:10

Frá Heathrow-flugvellinum í London

Stjórn Heathrow-flugvallarins í London kallar enn og aftur eftir nýjum og skipulagðari takmörkunum á ferðalögum fyrir flugfarþega en enn hefur farþegum ekki náð að fjölga að neinu ráði um Heathrow-flugvöll á sama tíma og farþegum hefur fjölgað gríðarlega um aðra stóra flugvelli í Evrópu.

Nýjar tölur um farþegafjölda sýna fram á enn fara aðeins um 30% um Heathrow af þeim fjölda sem fór um flugvöllinn fyrir heimsfaraldurinn og er helsta ástæðan fyrir því sögð vera síbreytilegar takmarkanir í Bretlandi vegna COVID-19 og ruglingsleg fyrirmæli um kröfur um skimanir fyrir farþega.

Heathrow-flugvöllur var árið 2019 annasamasti flugvöllur Evrópu en er núna í 10. sæti yfir stærstu flugvellina er kemur að farþegafjölda þar sem flugvellir á borð við Schiphol í Amsterdam, París og Frankfurt hafa tekið fram úr vegna þess hversu farþegum hefur fjölgað ört sl. mánuði og vikur.

Stjórn Heathrow-flugvallarins hefur ítrekað kallað eftir aðgerðum frá stjórnvöldum til þess að einfalda takmarkanir fyrir farþega svo hægt sé að afnema flöskuhálsinn og auka eftirspurn eftir flugi á ný og einnig flýta fyrir skimunarferlinu á flugvellinum.

„Ríkisstjórnin hefur valdið til þess að standa vörð um samkeppni á farþegaflugi sem myndi efla enn frekar efnahag Bretlands. Ef ráðherrar nýta ekki það tækifæri þá verður það til þess að Bretland mun verða enn meira eftir á er kemur að viðskiptum og efnhagslegum tengslum“, segir John Holland-Kaye, framkvæmdarstjóri Heathrow-flugvallarins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga