flugfréttir

Airbus ætlar að styrkja stöðu sína í smíði fraktflugvéla

17. september 2021

|

Frétt skrifuð kl. 12:36

Airbus A350-1000 tilraunarþota í flugtaki í Toulouse í Frakklandi

Airbus flugvélaframleiðandinn segist staðráðinn í því að koma með meiri samkeppni á markaðinn er varðar fraktflug og telur framkvæmdarstjóri fyrirtækisins að þörf sá á meiri samkeppni í flokki fraktflugvéla.

„Við höfum tekið eftir því að eftirspurnin eftir fraktflugvélum í heimsfaraldrinum jókst til muna og án ef mun þessi eftirspurn vara lengur“, segir Guillaume Faury, framkvæmdarstjóri Airbus, sem segir að það séu mikil tækifæri á þessum markaði.

Faury viðurkennir að Airbus hafi ekki beint verið mikið til staðar á markaðnum er kemur að fraktflugi en viðskiptavinir hafa beðið Airbus um að koma á markaðinn með betri fraktflugvélar og efla samkeppnina.

„Við höfum nýlega tilkynnt að til stendur að framleiða fraktútgáfu af Airbus A350 þotunni“, segir Faury en stjórn Airbus samþykkti í júlí sl. þróun á Airbus A350 fraktþotu sem gert er ráð fyrir að komi á markað árið 2025.

Þótt ekki sé búið að gefa upp mögulega viðskiptavini sem koma til greina fyrir fraktútgáfu af A350 þá eru nokkur flugfélög sem talin eru vera líkleg til þess að panta slíka þotu og þar á meðal Qatar Airways.

„Qatar Airways hafa mikinn áhuga á að panta stórar fraktþotur því að við þurfum að hefjast handa við að endurnýja þær gömlu“, sagði Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, í júní í sumar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga