flugfréttir

Sex gamlar Boeing 757 þotur á leið til nýs flugfélags í Alaska

- Northern Pacific Airways stefnir á að hefja áætlunarflug á næsta ári

22. september 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:42

Gamlar Boeing 757 þotur í litum American Airlines í Roswell í New Mexico í Bandaríkjunum

Nýtt bandarískt flugfélag í Alaska, sem verið er að stofna, hefur tryggt sér sex Boeing 757 þotur úr flota American Airlines en nýja flugfélagið verður dótturfélag flugfélagsins Ravn Alaska.

Flugfélagið, sem nefnist Northern Pacific Airways, er skrefi frá því að hefja flugrekstur og mun félagið að taka við sinni fyrstu Boeing 757 þotu í desember sem er 26 ára gömul.

Sú þota kemur úr flota American Airlines en saga þotunnar má rekja aftur til ársins 1995 er hún kom ný í flota America West sem síðar sameinaðist US Airways sem sameinaðist rekstri American Airlines árið 2015.

American Airlines hætti að nota þotuna í janúar árið 2020 og var hún ferjuð í mars það árið til Roswell í Nýju-Mexíkó en hefur núna gengist undir viðamikla C-skoðun auk þess sem verið er að mála hana í nýjum litum Northern Pacific Airways.

Boeing 757 þoturnar sex eru í eigu flugvélaleigunnar AerSale og ætlar Northern Pacific Airways að tryggja sér sex þotur til viðbótar og hefja flugrekstur með tólf þotur en stefnt er á að fyrsta áætlunarflugið árið 2022.

Rob McKinney, framkvæmdarstjóri flugfélagsins, segir að Boeing 757 þoturnar hafi orðið fyrir valinu þar sem þær eru tilbúnar til afhendingar núna og lengri bið hefði verið eftir nýrri og sparneytnari þotum.

Hinsvegar tekur McKinney fram að síðar verði skoðaðir möguleikar á að panta nýjar þotur á borð við Boeing 737 MAX og Airbus A321XLR þar sem félagið stefnir á að vera komið með 50 þotur í flotann eftir 4 til 5 ár.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga