flugfréttir
Play bætir Amsterdam við leiðarkerfið

Airbus A321neo þota frá flugfélaginu Play
Flugfélagið Play hefur bætt við nýjum áfangastaði í leiðarkerfið sem er Amsterdam en félagið mun byrja að fljúga á Schiphol-flugvöllinn í desember.
Fyrsta áætlunarflug Play til Amsterdam verður flogið þann 3. desember næstkomandi og mun félagið fljúga
þangað tvisvar í viku á mánudögum og föstudögum.
Þessi viðbót er tilkomin vegna aukinnar eftirspurnar eftir flugi til og frá landinu og einnig hefur ástandið haldið
áfram að batna er varðar stöðuna á heimsfaraldrinum.
Play flýgur í dag til sjö áfangastaða sem eru Kaupmannahöfn, París, Berlín, Alicante, Barcelona, Tenerife og London Stansted en þá
mun félagið einnig hefja flug til Salzburg í Austurríki í desember.


18. júlí 2022
|
Tim Clark, forstjóri Emirates telur að sá rekstarvandi, sem mörg flugfélög eru að berjast við þessa daganna, sé eitthvað sem má gera ráð fyrir að verði enn viðloðandi fram á næsta ár.

19. júlí 2022
|
Tveggja vikna verkfall meðal flugmanna hjá Scandinavian Airlines (SAS) er á enda en kjarasamningar náðust í gær á milli flugmanna og stjórnar flugfélagsins og líkur því þar með verkfallsaðgerðum sem

22. júlí 2022
|
Ekki hefur farið fyrir neinni holskeflu af pöntunum í nýja flugvélar á Farnborough-flugsýningunni á Englandi líkt og oft hefur verið á fyrri flugsýningum.

17. ágúst 2022
|
Flugþjálfunarfyrirtækið CAE og ástralska flugfélagið Qantas hafa undirritað samning um nýtt þjálfunarsetur sem mun rísa í Sydney í Ástralíu.

16. ágúst 2022
|
Breska flugfélagasamteypan IAG (Internatioan Airlines Group), móðurfélag British Airways og Iberia, hefur keypt 20 prósenta hlut í flugfélaginu Air Europa en um er að ræða lán í móðurfélaginu sem bre

15. ágúst 2022
|
Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) óska nú eftir því að starfslokaaldur atvinnuflugmanna verði hækkaður í von um að það muni auðvelda flugfélögum að hafa næga flugmenn á sama tíma og spár gera ráð f

15. ágúst 2022
|
Flugfélagið SAS (Scandinavian Airlines) hefur tryggt sér brúarlán upp á 96 milljarða frá fyrirtækinu Apollo Global Management til þess að endurfjármagna rekstur félagsins.

12. ágúst 2022
|
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að tími hræódýrra flugfargjalda sé liðinn og muni það núna heyra sögunni til að hægt sé að bóka flug fyrir aðeins 10 evrur aðra leiðina.

11. ágúst 2022
|
Rússneska flugfélagið Volga-Dnepr mun á næstunni segja upp yfir 200 flugmönnum sem starfa hjá félaginu og þar á meðal þeim flugmönnum sem starfa hjá dótturfélögunum AirBridgeCargo og Atran.

10. ágúst 2022
|
Malaysia Airlines er sagt ætla að festa kaup á tuttugu A330neo breiðþotum sem ætlað er að leysa af hólmi eldri þotur í flota flugfélagsins.

9. ágúst 2022
|
Sagt er að nokkur rússnesk flugfélög, og þar á meðal ríkisflugfélagið Aeroflot, séu farin að rífa niður farþegaþotur í sínum flugflota til þess að nálgast varahluti og halda öðrum flugvélum í flotan