flugfréttir
Delta íhugar pöntun í 737 MAX
Boeing 737-800 þota frá Delta Air Lines
Delta Air Lines segir að enn komi til greina að leggja inn pöntun í Boeing 737 MAX þoturnar en flugfélagið er eina félagið af fjórum stærstu flugfélögum Bandaríkjanna sem hefur ekki pantað Boeing 737 MAX þoturnar.
Delta Air Lines hefur yfir 200 Boeing 737 þotur í flota sínum sem eru af gerðinni Boeing 737-800 og Boeing 737-900ER
og hefur félagið ekki ákveðið hvort að þeim verði skipt út á næstu árum fyrir 737 MAX þoturnar en félagið á hinsvegar inni
pöntun hjá Airbus í 155 þotur af gerðinni Airbus A321neo.
Ed Bastian, framkvæmdarstjóri Delta, segir að það sé svo sannarlega markaður fyrir Boeing 737 MAX þoturnar í flota
félagsins og standi viðræður yfir við Boeing hvað það varðar en samt sé ekkert nýtt að frétta í þeim efnum.
Mögulega myndi Delta nota Boeing 737 MAX þoturnar einnig til þess að skipta út eldri Airbus-þotum af gerðinni Airbus A319 og A320
og einnig eldri Boeing 737 þotum en félagið hefur þó að undanförnu flogið eldri þotum og eiga 737-800 og 737-900ER þoturnar
töluverðan líftíma eftir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.