flugfréttir
Risaþotur British Airways snúa aftur í háloftin í nóvember
Airbus A380 risaþota British Airways
British Airways hefur tilkynnt að félagið stefni á að hefja aftur áætlunarflug með risaþotunum Airbus A380 í haust.
British Airways ætlar að taka aftur í notkun fimm risaþotur til að byrja með af þeim 12 sem félagið
hefur haft í flotanum og munu þær fljúga til að byrja með stutt áætlunarflug á milli London Heathrow
og Madrídar og Frankfurt sem er liður í þjálfun á þjónustu og fleiru um borð.
Fyrstu flugin með Airbus A380 innan Evrópu hjá félaginu verða farin þann 8. nóvember næstkomandi
en frá og með 3. desember verða risaþoturnar aftur settar í langflugsleiðarkerfið.
British Airways lýsti því yfir þann 4. ágúst að flugfélagið hefði framlengt samningi við
Lufthansa Technik um viðhaldsþjónustu á risaþotunum sem fram fer í Manila á Filippseyjum
og var þá gefið í skyn að von væri á að risaþotur félagsins yrðu teknar í notkun á ný á næstunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.