flugfréttir
Hafa áhyggjur af gríðarlegum hækkunum á flugvallargjöldum
- Vara við að slíkar hækkanir gætu hægt á bataferli flugfélaga vegna Covid-19
IATA hefur miklar áhyggjur af þeim hækkunum á gjöldum sem flugvellir víða um heim hafa gripið til auk hækkunum hjá flugleiðsöguþjónustufyrirtækjum
Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) hafa lýst yfir áhyggjum sínum varðandi fyrirhugaðar hækkanir á gjöldum á flugvöllum og meðal flugleiðsöguþjónustuaðila víðsvegar um heiminn.
IATA hefur varað við því að slíkar hækkanir gætu haft áhrif á þann bata sem er að eiga
sér stað meðal flugfélaganna og seinkað því að einstaka millilandaflug eigi eftir að ná sér
eftir heimsfaraldurinn eins skjótt og annars myndi verða án slíkra hækkanna.
IATA segir að nú þegar hafi flugvellir og fyrirtæki sem veita flugleiðsöguþjónustu
víðs vegar um heim hækkað gjöld sín sem nemur yfir 290 milljörðum króna en enn frekari
hækkanir á næstunni gætu tífaldað þá tölu.
„Hækkun á gjöldum sem nemur yfir 2 milljörðum Bandaríkjadala á viðkvæmum tímum
er svívirðilegt. Við viljum öll komast í gegnum Covid-19“, segir Willie Walsh, framkvæmdarstjóri
IATA.
„Að setja þessa fjárhagslegu byrði á krísutímum á herðar viðskiptavina, bara vegna
þess að það er hægt að komast upp með það, eru viðskiptahættir sem aðeins óheiðarleg einokunarfyrirtæki
myndu láta detta sér í hug að framkvæma“, segir Walsh.
Fram kemur að Heathrow-flugvöllurinn í London sé að íhuga að hækka flugvallargjöld
sín um 90% á næsta ári á meðan Schiphol-flugvöllurinn í Amsterdam hefur sótt um leyfi
til þess að hækka gjöld sín um 40 prósent á næstu þremur árum.
Þá segir IATA að Eurocontrol, sem fer fyrir flugleiðsögufyrirtækjum í 29 löndum í Evrópu,
stefni á að ná gróða upp á 8 milljarða evra, eða sem samsvarar 1.195 milljörðum króna,
til þess að bæta fyrir tapreksturinn árið 2020 og það sem af er þessu ári.
IATA hafði áður komið með hugmyndir um hvernig flugvellir og flugleiðsöguþjónustufyrirtæki gætu bætt rekstur sinn vegna heimsfaraldursins með ýmsum öðrum leiðum án þess
að grípa til hækkanna en Alþjóðasamtök flugvalla (ACI World) gagnrýndu IATA fyrir þær hugmyndir og taldi þær ekki bera nægilegan árangur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.