flugfréttir
Farþegi slasaðist við að fjarlægja hjólakubba með mótor í gangi
Mynd af Cessna 172 flugvélinni í skýrslu NTSB varðandi atvikið sem átti sér stað árið 2019
Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) hefur gefið frá sér skýrslu varðandi atvik sem átti sér stað er farþegi í lítilli flugvél slasaðist alvarlega er hann reyndi að fjarlægja hjólakubba frá nefhjóli á meðan mótorinn var í gangi.
Atvikið átti sér stað að næturlagi í október árið 2019 á flugvellinum í Key West í Bandaríkjunum og hafði flugmaður
vélarinnar, sem var af gerðinni Cessna 172, framkvæmt fyrirflugsskoðun.
Flugmaðurinn hafði einn farþega með sér í för og þegar kom að því að aka flugvélinni fyrir brottför
kom í ljós að hún vildi ekki hreyfast af stað.
Flugmaðurinn horfði út um glugga vélarinnar til að skima eftir því hvort að hjólakubbar væru við vinsta hjólið („wheel
chocks“) en á meðan opnaði farþeginn dyrnar hjá sér og fór út til að athuga hvort það væru kubbar við hægra hjólið.
Farþeginn fór því næst að nefi vélarinnar til að athuga nefhjólið og kom auga á hjólakubba við hjólið
að framan. Er hann gerði tilraun til þess að fjarlægja þá rakst loftskrúfan í hægri handlegg hans
með þeim afleiðingum að hann slasaðist alvarlega.
Í skýrslu frá NTSB segir að orsök atviksins megi rekja til þeirrar ákvörðunar flugmannsins að láta
farþega gera tilraun til að fjarlægja kubbana á meðan mótorinn var í gangi.
Atvikið var skráð sérstaklega í flokki tilvika sem draga má lærdóm af í þeim tilgangi að koma í veg
fyrir að aðrir flugmenn geri sambærileg mistök.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.