flugfréttir
Síðasta flugið í sögu Alitalia
- Alitalia kveður flugheiminn eftir 75 ára starfsemi
Airbus A320 þota frá Alitalia á Fiumicino-flugvellinum í Róm í gærkvöldi eftir síðasta áætlunarflugið í sögu félagsins
Alitalia flaug í gær sitt síðasta áætlunarflug en saga þessa ítalska flugfélags heyrir núna sögunni til eftir 75 ára starfsemi.
Eins og flestum er kunnugt hefur rekstur Alitalia gengið mjög erfiðlega undanfarin ár og hefur félagið nokkrum sinnum
verið lýst gjaldþrota en félagið hefur verið rekið með tapi allt frá árinu 2002.
Síðasta áætlunarflug Alitalia var flogið í gærkvöldi og var um að ræða flug AZ1586 frá Cagliari á eyjunni Sardiníu
til Fiumicino-flugvallarins í Rómar en frá og með deginum í dag mun nýja flugfélagið ITA (Italia Trasporto Aereo) taka við keflinu.
Frá og með deginum í dag mun flugfélagið ITA (Italia Trasporto Aereo) hefja áætlunarflug í stað Alitalia
Alitalia hóf starfsemi sína þann 5. maí árið 1947 undir nafninu
Aerolinee Italiane Internazionali og var fyrsta flug þess félags
flug frá Tórínó til Rómar og þaðan til Catania en fyrsta
flug félagsins á milli heimsálfa var flogið árið 1948 frá Mílanó til
Suður-Ameríku.
Nýja flugfélagið ITA mun aðeins fljúga til 44 áfangastaða til að byrja með en stefnan er að áfangastöðunum muni fjölga
upp í 74 fyrir árið 2025 en þess má geta að Alitalia flaug til yfir 100 áfangastaða fyrir heimsfaraldurinn.
Þá náðist aðeins að bjarga um 2.800 störfum af þeim 11.000 starfsmönnum sem störfuðu hjá Alitalia og mun ITA
hafa 52 flugvélar í flotanum af þeim 150 flugvélum sem voru í flota Alitalia þegar mest var.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.