flugfréttir
Geta aðeins greitt 0.5 prósent af 1.050 milljarða króna skuld
AirAsia X segist aðeins hafa bolmagn til þess að greiða 0.5 prósent af 1.050 milljarða króna skuld
Asíska lágfargjaldaflugfélagið AirAsia X hefur boðist til að greiða aðeins 0.5 prósent af heildarskuldum flugfélagsins.
Sú fjárhæð sem AirAsia X skuldar kröfuhöfum sínum nemur 8.1 milljarði Bandaríkjadala eða sem samsvarar
eitt þúsund og fimmtíu milljörðum króna og segir félagið að það hafi aðeins bolmagn til að greiða 5 milljarða króna.
Í yfirlýsingu frá AirAsia X segir að eina leiðin til að komast hjá gjaldþroti og til þess að gera flugfélaginu kleift að halda
áfram áætlunarflugi sé að ef kröfuhafar sætta sig við núverandi tilboð félagsins.
Félagið hefur ákveðið dagsetningu fyrir fyrirhugaðan fund með kröfuhöfum þann 12. nóvember þar sem framhaldið
varðandi skuldina verður tekin fyrir og endurgerð rekstaráætlun verður rædd.
Þann 1. júlí sl. fór fram hluthafafundur þar sem ný rekstaráætlun félagsins var samþykkt sem var stórt skref til þess
að gera félaginu kleift að halda starfsemi sinni áfram en kröfuhafar og lánadrottnar eiga ennþá eftir að samþykkja
þá rekstaráætlun.
Afkoma AirAsia X eftir annan ársfjórðung var neikvæð um 765 milljarða króna sem er töluvert meira tap
samanborið við sama ársfjórðung árið 2020 þegar afkoma félagsins var neikvæð um 9.4 milljarða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.