flugfréttir
Síðasta risaþotan sem afhent er frá verksmiðjunum í Toulouse
- ANA hefur fengið síðan þriðju og síðustu risaþotu afhenta
Airbus A380 risaþotan „Orange Turtle“ í flugtak frá flugvellinum í Toulouse í Frakklandi
Japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) tók fyrir helgi við sinni síðustu Airbus A380 risaþotu sem er einnig síðasta risaþotan sem Airbus afhendir frá verksmiðjunum í Toulouse.
Airbus á enn eftir að afhenda tvær Airbus A380 þotur til Emirates en þær risaþotur verða afhentar frá verksmiðjunum
í Hamborg.
Risaþotan sem afhent var til ANA var þriðja risaþotan sem flugfélagið japanska fær afhenta en sú þota fór í afhendingarflugið
sitt sl. föstudag þann 15. október og kemur sú risaþota í „Orange Turtle“ litabúningnum.
Þotan var afhent nákvæmlega upp á dag 14 árum eftir að Airbus afhenti fyrstu A380 risaþotuna til Singapore Airlines þann 15. október árið 2007.
Airbus hefur í dag afhent 251 risaþotu til fjórtán flugfélaga en næstum því helmingur af öllum þeim risaþotum, sem framleiddar hafa verið, hafa
verið smíðaðar fyrir Emirates sem hefur í dag 120 risaþotur í flotanum.
Þar næst kemur Singapore Airlines sem fékk 24 Airbus A380 þotur afhentar og þar næst kemur Lufthansa
sem fékk 14 risaþotur afhentar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.