flugfréttir

FAA gagnrýnir Boeing fyrir öryggis- og eftirlitsmál

12. nóvember 2021

|

Frétt skrifuð kl. 15:46

Samkvæmt bréfinu bendir FAA á að sumir af þessum sérfræðingum uppfylli ekki sérstakar kröfur sem gerðar eru til slíkra fagaðila

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa sent Boeing bréf þar sem bent er á að sumir verkfræðingar sem flugvélaframleiðandinn hefur gert að eftirlitsmönnum til þess að meta öryggisatriði, taka viðtöl og leggja mat á ýmiss atriði er snúa að framleiðslunni, uppfylli ekki kröfur FAA.

Samkvæmt bréfinu bendir FAA á að sumir af þessum sérfræðingum uppfylla ekki sérstakar kröfur sem gerðar eru til slíkra fagaðila. FAA komst að þessari niðurstöðu eftir að Boeing ákvað að bjóða nokkrum verkfræðingum starfslokasamning sem voru hæfastir til þess að sinna öryggiseftirliti.

Nýjar reglur varðandi hæfni og kröfur munu taka í gildi fyrir lok þess árs þar sem farið verður fram á að hver skipun og ráðning í slíka stöðu verði tilkynnt og borin undir bandarísk flugmálayfirvöld með viðeigandi viðtali og mun FAA sjá um að ákveða hvort að hver aðili verður ráðinn í stöðuna eður ei.

Boeing hefur verið töluvert undir auknu eftirliti hjá bandarískum flugmálayfirvöldum er varðar öryggismál í kjölfar kyrrsetningarinnar á Boeing 737 MAX þotunum og hefur FAA takmarkað frelsi Boeing til þess að sinna öryggismálum og vottunum sem fóru að miklum hluta fram innanhúss er varðar minni vottanir og eftirlit með gæðamálum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga