flugfréttir

Rússar hefja smíði á vængjum fyrir fyrstu CR929 breiðþotuna

23. nóvember 2021

|

Frétt skrifuð kl. 12:40

Líkan af CR929 breiðþotunni sem er í framleiðslu hjá Rússum og Kínverjum

Rússneska fyrirtækið AeroComposit, dótturfélag rússnesku flugvélasamsteypunnar United Aircraft Corporation (UAC), hefur hafist handa við smíði á fyrstu einungunni sem Rússar framleiða fyrir fyrstu prótótýpuna af Comac CR929 breiðþotunni sem verður framleidd í samvinnu milli Rússa og Kínverja.

Um er að ræða smíði á vængjum fyrir þotuna sem hefur verið markaðsett í von um að etja kappi við breiðþotur frá Boeing og Airbus en breiðþotan mun koma með sæti fyrir 250 til 320 farþega.

Smíði á vængjunum fer fram í verksmiðju AeroComposit í borginni Ulyanovsk í Rússlandi en Kínverjar byrjuðu að smíða fyrstu eininguna hjá sér í september í verksmiðju Comac í borginni Linang en ekki kemur fram hvaða hluti flugvélarinnar verið er að smíða.

Rússar munu taka að sér að smíða stóran hluta af CR929 breiðþotunni og þar á meðal skrokkinn og vængina en sama verksmiðja hefur séð um framleiðslu á íhlutum í MC-21 þotunni og einnig fyrir Sukhoi Superjet 100 þotuna.

Áætlað er að Comac CR929 breiðþotan muni fljúga sitt fyrsta flug á tímabilinu milli 2025 og 2027 en seinkun verður á dagsetningunni hvenær þotan kemur á markað sem er áætlað árið 2028 eða 2029.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga