flugfréttir
777 Partners panta 30 Boeing 737 MAX þotur
Þetta er fjórða pöntunin á þessu ári sem Boeing fær frá fyrirtækinu 777 Partners
Boeing hefur fengið pöntun í 30 farþegaþotur af gerðinni Boeing 737 MAX en viðskiptavinurinn er bandaríska fjárfestingarfyrirtækið 777 Partners.
Með pöntuninni er heildarfjöldi þeirra Boeing 737 MAX þotna sem 777 Partners hefur pantað
komin í 68 þotur.
Þetta er fjórða pöntunin sem fyrirtækið leggur inn í 737 MAX þotur á þessu ári og er
pöntunin metin á 3.7 milljarða Bandaríkjadali eða sem samsvarar 485 milljörðum króna.
Stærstur hluti af þeim Boeing 737 MAX þotum sem 777 Partners hefur pantað
eru af gerðinni 737 MAX 200 og segir Josh Wander, framkvæmdastjóri 777 Partners, að
fyrirtækið hafi mikla trú á þeirri þotu sem er sérstaklega áætluð fyrir lágfargjaldafélög
og telur hann að sú þota eigi eftir að koma sér vel þegar flugiðnaðurinn tekur við sér að
nýju.
777 Partners er fjárfestingarfyrirtæki sem hefur höfuðstöðvar sínar í Miami í Flórída en fyrirtækið á til að mynda
allan hlut í kanadíska lágfargjaldarfélaginu Flair Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.