flugfréttir

Airbus höfðar mál gegn Qatar Airways

- Deilur vegna málningarvinnu á Airbus A350 verður að dómsmáli

12. desember 2021

|

Frétt skrifuð kl. 15:57

Airbus A350-1000 þota frá Qatar Airways

Töluvert hefur hitnað í kolunum á milli Airbus og flugfélagsins Qatar Airways og hefur Airbus höfðað mál gegn flugfélaginu vegna deilna varðandi gæðastaðal og galla í málningu á nýjum Airbus A350 þotum sem hafa verið afhentar til Qatar Airways.

Málið varðar galla í yfirlagi og málningarvinnu á nýjum Airbus A350 þotum sem félagið hefur fengið auk annmarka í húðun í skrokk vélanna sem virkar sem vörn gegn því ef flugvélarnar verða fyrir eldingu.

Airbus sakar Qatar Airways um að mistúlka málið með því að skilgreina gallana sem öryggisatriði og hefur Airbus ákveðið að fara í mál á þeim forsendum en Qatar Airways segir að félagið hafi neyðst til þess að kyrrsetja að minnsta kosti 20 þotur vegna gallans.

Airbus segir að þrátt fyrir þessa annmarka í frágangi á málningu þá hafi evrópsk flugmálayfirvöld ekki sett neinar takmarkanir eða kyrrsett neinar Airbus A350 þotur í Evrópu.

„Allar tilraunir til þess að setja þetta fram sem alvarleg öryggisatriði sem varðar lofthæfi þotunnar er ósanngjörn og óbein yfirlýsing til flugmálayfirvalda í öðrum löndum heimsins sem á sér ekki nein rök“, segir í yfirlýsingu frá Airbus.

Sérfræðingar sem eru kunnugir málinu segja að ekki sé neitt sem bendir til þess að Qatar Airways ætli sér að gefa eftir í deilunni sem hefur nú þegar orðið til þess að Airbus hefur misst stóra pöntun í 35 fraktþotur til Boeing.

Fréttastofan Reuters hefur undir höndum gögn sem benda til þess að fimm önnur flugfélög hafi einnig kvartað undan ófullnægjandi frágangi á málningu á Airbus A350 þotunum frá árinu 2016 og nú seinast hefur Delta Air Lines bæst við í þann hóp en Qatar Airways er eina flugfélagið sem hefur þurft að kyrrsetja þoturne vegna vandans.

Philippe Mhun, varaformaður hjá þjónustudeild farþegaþotna hjá Airbus, segir að framleiðandinn hafi boðist til að taka að sér lagfæringar og viðgerðir á Airbus A350 þotunum en Qatar Airways hafi ítrekað hafnað því boði.

Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, sagði í seinustu viku í London að flugfélagið viti ekki lengur hvort þetta sé mál sem varðar lofthæfi en evrópsk flugmálayfirvöld (EASA) segja að hingað til hafi þeir ekki fengið neitt inn á borð til sín neitt er snertir lofthæfi Airbus A350 vélanna.

Airbus segir að dómsmálið sem framleiðandinn hefur höfðað sé í formi dómssáttar þar sem Qatar Airways er boðin málamiðlun í deilunni. Qatar Airways segir að ímynd flugfélagsins sé í húfi og einnig rekstaráætlun með Airbus A350 þoturnar þar sem félagið hefur séð fram á að þær muni spila stórt hlutverk í farþegaflugi til og frá Doha á næstunni og þá sérstaklega á næsta ári þegar Heimsmeistarakeppninn í fótbolta, FIFA 2022, fer fram í Qatar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga