flugfréttir

Indónesía mun aflétta flugbanni fyrir Boeing 737 MAX

28. desember 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:31

Boeing 737 MAX þota frá Lion Air við verksmiðjur Boeing í Renton í Washington-ríki í Bandaríkjunum

Flugmálayfirvöld í Indónesíu segja að til standi að aflétta flugbanni fyrir Boeing 737 MAX þoturnar á næstu dögum eftir þriggja ára flugbann þar í landi.

Indónesía er meðal síðustu löndum heimsins sem hafa ekki enn gefið 737 MAX þotunum grænt ljós eftir flugbann sem varði í um það bil tvö ár í kjölfar tveggja flugslysa árið 2018 og 2019 en fyrra flugslysið átti sér stað í Indónesíu.

Seinna slysið átti sér stað í Eþíópíu en Ethiopian Airlines stefnir á að hefja á ný áætlunarflug með Boeing 737 MAX þotunum þann 1. febrúar næstkomandi. Eþíópía var fyrsta landið í heiminum til þess að kyrrsetja 737 MAX þoturnar og hefur flugbanninu ekki verið aflétt þar þrátt fyrir ítarlegar prófanir sem tóku enda í ágúst.

Indónesíska flugfélagið Lion Air hefur ekki ákveðið hvenær til standi að hefja aftur flug með Boeing 737 MAX og þá segir ríkisflugfélagið, Garduda Indonesian, að engin áform eru enn um að hefja aftur flug með þoturnar en félagið einblínir nú á skuldabagga félagsins og hefur verið áætlað að minnka flugflotann úr 142 flugvélum niður í 66 flugvélar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga