flugfréttir

Asiana Airlines tilkynnir endurkomu risaþotunnar

2. janúar 2022

|

Frétt skrifuð kl. 16:04

Airbus A380 risaþota frá Asiana Airlines

Suður-kóreska flugfélagið Asiana Airlines hefur staðfest endurkomu risaþotunnar Airbus A380 og er félagið farið að undirbúa að koma þessari stærstu farþegaþotu heims aftur á flug.

Með þessu bætist flugfélagið í hóp annarra flugfélaga sem eru byrjuð að fljúga Airbus A380 eða hafa staðfest endurkomu risaþotunnar en flest flugfélög í heiminum voru fljót að kyrrsetja Airbus A380 um leið og heimsfaraldurinn hófst í byrjun ársins 2020 og var þeim flestum komið fyrir í langtímageymslu.

Emirates var eina flugfélagið sem flaug risaþotunum sínum í gegnum heimsfaraldurinn en í dag eru British Airways, Qatar Airways og Singapore Airways öll byrjuð að fljúga áætlunarflug að nýju með A380 og mun Qantas einnig bætast við í hópinn á næstunni.

Asiana Airlines, sem hefur sex Airbus A380 þotur í flotanum, stefnir á að fljúga þotunum á ný í mars og verða þær notaðar í áætlunarflugi frá Seoul til Frankfurt og Los Angeles.

Asiana Airlines pantaði A380 frá Airbus árið 2011 og fékk félagið sína fyrstu risaþotu afhenta árið 2014 og þá seinustu árið 2016 en félagið hefur í dag áform um að hætta síðan með risaþoturnar árið 2026.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga