flugfréttir
Icelandair flýgur til Rómar, Alicante og Nice í sumar
- Sumarið 2022 telur 43 áfangastaði í Evrópu og Norður-Ameríku
Icelandair mun hefja flug til Rómar í sumar
Icelandair hefur birt sumaráætlun sína fyrir sumarið 2022 og eru þar fjórir nýir áfangastaðir kynntir til leiks, þrír í Evrópu og einn í Norður-Ameríku en félagið hefur bætt við í leiðarkerfið Róm, Alicante og Nice í Frakklandi og þá hefst flug að nýju til Montreal í Kanada.
Í yfirlýsingu kemur fram að Icelandair bjóði með þessu hentuga tengingu frá Norður-Ameríku
til þriggja vinsælla ferðamannastaða í Evrópu með möguleika á viðdvöl
á Íslandi án aukakostnaðar þótt dvalið sé hér á landi í nokkra daga.
Fram kemur að flogið verður til Fiumicino-flugvallarins í Róm tvisvar í viku á miðvikudögum og sunnudögum frá 6. júlí
fram til 4. september.
Til Nice verður flogið á miðvikudögum og laugardögum frá 6. júlí fram til 27. ágúst en
strax í næsta mánuði hefst flug til Alicante og verður flogið frá 10. febrúar til enda október og verður flogið
tvisvar í viku.
Til Montreal verður flogið þrisvar í viku, á miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum frá 24. júní
fram til 25. september.
Flogið til 43 áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku
Heildarfjöldi áfangastaða í leiðarkerfi Icelandair í sumar telur 43 borgir en flogið verður til 29
áfangastaða í Evrópu og til 14 í Norður-Ameríku.
Heilsársáfangastaðir Icelandair eru:
Kaupmannahöfn
Stokkhólmur
Osló
Helsinki
Amsterdam
París
Berlín
Frankfurt
Munchen
Zurich
London
Glasgow
Manchester
Dublin
Boston
New York
Seattle
Washington
Denver
Chicago
Toronto
Tenerife
Nuuk
Kulusuk
Árstíðabundnir áfangastaðir Icelandair eru:
Róm
Nice
Montreal
Alicante
Raleigh-Durham
Bergen
Billund
Hamborg
Genf
Brussel
Minneapolis
Vancouver
Portland
Anchorage
Baltimore
Mílanó
Madrid
Salzburg
Orlando
Ilulissat
Narsarsuaq
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.