flugfréttir

Áframhaldandi bataferli í fluginu þrátt fyrir Ómíkron

12. janúar 2022

|

Frétt skrifuð kl. 17:44

Útbreiðsla Ómíkron-afbrigðisins hefur haft smávægileg áhrif á það bataferli sem hefur átt sér stað í bókunum á flugi í heiminum

Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) segja að áframhaldandi bataferli hafi verið í fluginu í heiminum í nóvember sl. í kjölfar heimsfaraldursins og hafi eftirspurn eftir millilandaflugi og flugi milli heimsálfa haldið áfram að aukast en hinsvegar gæti verið að áhrifin af Ómíkron-afbrigðinu eigi eftir að hafa einhver áhrif.

Heildareftirspurn eftir flugi í nóvember árið 2021 var 53% af þeirri eftirspurn sem var í nóvember árið 2019 áður en faraldurinn hófst sem er 1.9% aukning miðað við mánuðinn á undan sé október 2021 samanborin við október árið 2019.

Eftirspurn eftir innanlandsflugi dróst eilítið saman eftir tveggja mánaða vöxt og var 24.9% minni í nóvember 2021 samanborið við nóvember 2019 en samdrátturinn í október var 21.3% minni samanborið við október 2019 en þar spilar að mestu inn í samdráttur í innanlandflugi í Kína vegna strangari ferðatakmarkanna.

Eftirspurn eftir öllu millilandaflugi í heiminum og þar með talið flug milli heimsálfa var 39.5% af því sem var í nóvember árið 2019 en var 35.2 prósent í október samanborið við október árið 2019.

„Bataferlið hélt áfram í nóvember en því miður þá brugðust ríkisstjórnir of harkalega við Ómíkrón-afbrigðinu og lýstu sumstaðar yfir neyðarástandi og innleiddu hertari aðgerðir er kemur að skimunum á flugfarþegum og því kemur ekki á óvart að það hafði áhrif á farmiðasölu í desember og í byrjun ársins“, segir Willie Walsh, yfirmaður IATA.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga